Virðulegi stólmeistari, mig langar að afhenda þér Alþjóðlega fundarhamarinn og óska eftir því að þú stjórnir stúku þinni með honum á þessum fundi.
Hugmyndin að Alþjóðlega fundarhamrinum varð til í North Bay, Ontario í Kanada í júlí 2006 sem leið til að styrkja bönd bróðurkærleikans og vináttu í heiminum. Ég vona að þessi smái vináttuvottur hjálpi okkur að muna að hvar sem við erum í heiminum þá sé hönd bróður merki um bræðralag. Á fundinum hér í kvöld verður hann hluti af verki sem færir okkur saman sem bræðralag og þó að heimurinn sé stór og landamæri löng þá munu bönd bræðralags okkar halda og styrkja okkur hvar sem við erum í heiminum.
Virðulegi stólmeistari ég óska einnig eftir því að við lok fundarins að þú skráir upplýsingar um fund þennan í meðfylgjandi gerðarbók og afhendir síðan hamarinn til annarar stúku til notkunar. Einnig að þú fylgir meðfylgjandi leiðbeiningum, svo hægt verði að fylgjast með ferðalagi hamarsins á vef og í gegnum fréttabréf, þannig að bræður geti notið þess að skoða þetta ferðalag í framtíðinni.
Translated By:
Bro. Steinarr Kr. Omarsson
St. Johns Lodge Mimir #3 - Iceland
St. Andrews Lodge Hlin #3 - Iceland
0 comments:
Post a Comment